Breska söngkonan Amy Winehouse, sem flutt var á sjúkrahús í gærkvöldi, var send heim í morgun. Að sögn talsmanns söngkonunnar brást líkami söngkonunnar illa við læknismeðferð og því var hún send á sjúkrahús til eftirlits.
Ekki var upplýst um hvers konar læknismeðferð var að ræða. Winehouse var lögð inn á heilsuhæli í Lundúnum í júní eftir að hafa fengið aðsvif heima hjá sér. Faðir hennar sagði þá að dóttir hans væri komin með lungnasjúkdóm vegna sígarettu- og kókaínreykinga.