Jennifer Aniston og John Mayer ætla að ganga í „tilraunahjónaband.“ Þau hafa verið saman í þrjá mánuði, og eru sögð hafa mikinn áhuga á að láta reyna á sambandið. Fyrsta skrefið í því skyni verður að Mayer flytur inn til Aniston.
Heimildamaður tjáir breska tímaritinu Grazia að bæði hafi þau áhuga á að koma tilverunni í fastar skorður. Talið er að Mayer muni flytja inn í glæsihús Aniston í Beverly Hills í septemberlok.
Þá eru þau og sögð hafa hug á að stofna fjölskyldu, og segir heimildamaðurinn að Aniston hafi mikinn áhuga á barneignum.