Lindsay Lohan vandaði lögreglunni ekki kveðjurnar í gær, og frábað sér afskipti hennar af einkalífi sínu. Daginn áður lét lögreglustjóri þau orð falla að ágengir blaðaljósmyndarar væru nú orðnir minna vandamál en áður, m.a. vegna þess að Lohan væri „orðin að lesbíu.“
„Lögreglustjórar ættu ekki að skipta sér af einkalífi annarra,“ sagði Lohan á myndbandi sem birt var á slúðurveitunni TMZ.com. Á myndum sem fylgja með má sjá Lohan og kærustu hennar, Samöntu Ronson, á flugvellinum í Los Angeles á leið í flug til Chicago.
Á fimmtudaginn sagði William Bratton, lögreglustjóri í Los Angeles, að papparassar væru nú orðnir minna vandamál í borginni en áður var, vegna þess að Britney Spears væri farin að „ganga í fötum og haga sér sæmilega,“ París Hilton væri farin úr bænum, „guði sé lof,“ og „Lindsay Lohan er víst orðin að lesbíu.“