Það var heldur betur líf í tuskunum á sérstakri söngsýningu á kvikmyndinni Mamma mia! fimmtudagskvöldið sl. Gestir sungu og dönsuðu í fullum bíósal í Háskólabíói.
Stefnt er að því að halda aðra slíka sýningu á kvikmyndinni nk. fimmtudag. Myndin byggist á söngleik með ABBA-lögum.