Idol-stjarnan Clay Aiken eignaðist sitt fyrsta barn í gær (föstudag). Barnið er drengur og Aiken eignaðist hann með fimmtugri vinkonu sinni sem var ófrísk eftir tæknifrjóvgun.
Syninum hefur verið gefið nafnið Parker Foster Aiken og föðuramma hans segir að Clay brosi nú eyrnanna á milli. Aiken hefur aldrei rætt opinberlega um einkalíf sitt en almennt er talið að hann sé samkynhneigður.