Fyrirsætan og leikkonan Megan Fox, sem karlatímaritið FHM krýndi á dögunum kynþokkafyllstu konu heims, mun leika nunnuna og friðarverðlaunahafa Nóbels, móður Teresu, í kvikmyndinni How To Lose Friends and Alienate People. Kaþólikkar þurfa ekki að örvænta því myndin snýst ekki um ævi og störf nunnunnar víðfrægu. Fox leikur leikkonu sem hreppir hlutverk nunnunnar í kvikmynd sem kemur við sögu í kvikmyndinni. Kvikmynd í kvikmynd, sem sagt.
Simon Pegg og Kirsten Dunst leika í How To Lose Friends and Alienate People sem flokkast sem grínmynd. Grínið gengur meira að segja svo langt að stikla var búin til um móður Teresu-myndina sem ber heitið Teresa: The Making of a Saint. Stikluna má m.a. sjá á YouTube.com.
Fox er 22 ára gömul og ekki beinlínis lík móður Teresu. Hún er sjálfsagt mönnum eftirminnilegust fyrir túlkun sína á Mikaelu Banes, sem er mestallan tímann á flótta undan skæðum vélum utan úr geimnum í myndinni Transformers. Hún mun birtast á ný í annarri mynd um vélarnar sem frumsýnd verður á næsta ári en henni var gert að bæta á sig nokkrum kílóum fyrir þá mynd. Ástæðuna segir hún þá að leikstjórinn Michael Bay sé ekki hrifinn af horuðum konum.