Nýdönsk mun innan skamms halda í hljóðver til að taka upp nýja plötu. Að sögn Jóns Ólafssonar, píanóleikara hljómsveitarinnar, verður um að ræða ekta Nýdanska plötu í hrárri kantinum.
Platan mun líkjast Deluxe sem var tekin upp á einni viku en aðrar plötur sveitarinnar hafa verið meiri stúdíóplötur. Eftir yfir 20 ára feril hefur Nýdönsk engu gleymt.