Jolie í stað Cruise

Angelina Jolie.
Angelina Jolie. Reuters

Það er ekki í frásögur færandi að Angelina Jolie muni leika aðalhlutverkið í nýrri hasarmynd. Það vekur hins vegar athygli að Jolie hafi verið fengin til að leika aðalhlutverkið sem hafði verið eyrnamerkt Tom Cruise.

Bandaríska kvikmyndatímaritið Variety segir að handriti myndarinnar, sem ber heitið Edwin A Salt, verði breytt sem og nafni myndarinnar.

Jolie, sem er 33ja ára,, sást síðast í hasarmyndinni Wanted, þar sem hún lék aðalhlutverkið ásamt James McAvoy.

Cruise hefur hins vegar lengi verið tengdur við Edwin A Salt. Aðrir karlleikarar hafa sagst vera reiðubúnir að taka við hlutverkinu af Cruise áður en Jolie lýsti yfir áhuga á verkefninu.

Variety segir að ekki verði gerð meiriháttar breyting á handritinu, svo hlutverkið passi Jolie. Í myndinni mun hún leika starfsmann bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sem er sakaður um að vera rússneskur njósnari. Eins og mörgum klassískum njósnamyndum leggst Jolie á flótta og reynir um leið að sanna sakleysi sitt.

Tom Cruise.
Tom Cruise. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar