Fregnir herma að Lindsay Lohan ætli að snúast til gyðingdóms fyrir unnustu sína, Samöntu Ronson. Lohan ólst upp í kaþólskri fjölskyldu, en vinir hennar segja hana hafa hrifist mjög af trúarsiðum gyðinga, sem hún hafi kynnt í fjölskyldu Ronson.
Aðrir vinir Lohan segja hana bara að þessu til að vekja á sér athygli. Tímaritið Life and Style hefur eftir heimildamanni:
„Fyrir tveimur árum var það kabbalismi, í fyrra var það AA. Hún var „friðarsinni“ um hríð. Hún stekkur á það sem hæst ber hverju sinni. En þetta sýnir tryggð hennar við Sam. Það væri alveg sama hvaða trúarbrögð væri um að ræða, Lindsay væri til í þau.“