Yfirvöld í Búdapest velta fyrir sér mögulegum aðgerðum gegn dúfum en kvörtunum rignir nú yfir þau vegna dúfna.
Íbúar höfuðborgar Ungverjalands eru búnir að fá sig fullsadda af þeim þúsundum dúfna sem tekið hafa sér bólfestu í íbúðarblokkum. En hvernig ætti að draga úr fjöldanum? Borgarráð hefur nú málið til umfjöllunar en flest bendir til þess að langt sé í svarið.