Bandaríski leikarinn Laurence Fishburne hefur tekið að sér hlutverk í bandaríska sakamálaþættinum CSI: Crime Scene Investigation.
Framleiðendur þáttana segja það draumi líkast að fá Fishburne í þættina, en einn af aðalleikurunum, William Peterson, hefur ákveðið að segja skilið við þættina.
Fishburne mun leika meinafræðing, sem kenndi afbrotafræði áður en hann gekkst til liðs við rannsóknarteymið í Las Vegas.
Fishburne hefur leikið í myndum á borð við The Matrix, Apocalypse Now og Mission Impossible III.