Sjónvarpið hefur lengi verið gagnrýnt fyrir að sinna illa listmiðli sem er sem sniðinn fyrir sjónvarp, myndlistinni. Í síðustu viku bárust þær gleðifréttir að menningarsjónvarpsmaðurinn Þorsteinn J. myndi bæta úr þessu með nýjum menningarþætti næsta vetur í Sjónvarpinu, Kátu maskínunni, þar sem sinna á öllum listgreinum.
Þátturinn verður í anda South Bank Show, einn listamaður tekinn rækilega fyrir í hverjum þætti, portrett dregið upp af honum svo að segja. Einu þættirnir um myndlist í Sjónvarpinu undanfarið hafa verið erlendir örþættir um listamenn Carnegie Art Awards sýningarinnar, sem enn er verið að sýna (þó sýningunni hafi lokið í Gerðarsafni fyrir níu dögum). Vonandi að myndlistin fái nú fastan sess.