DeGeneres og de Rossi íhuga barneignir

Ellen DeGeneres og Portia de Rossi
Ellen DeGeneres og Portia de Rossi Reuters

Leikkonan góðkuna Ellen DeGeneres og sambýliskona hennar, Portia de Rossi, íhuga að fjölga í fjölskyldunni. De Rossi, sem er einnig leikkona og lék í sjónvarpsþáttunum Ally McBeal, og DeGeneres staðfestu samvist sína formlega við hugljúfa sólsetursathöfn í síðustu viku. De Rossi, sem er 35 ára, segir í viðtali að þær hafi rætt um mögulegar barneignir.

„Við höfum verið að skipta um skoðun. Ég veit ekki hvað við gerum í nánustu framtíð. En við ræðum þetta alltaf á nokkurra mánaða fresti.“

DeGeneres, sem stýrir eigin sjónvarpsþætti, hefur hlæjandi sagst vel geta hugsað sér að vera móðir „fallegra barna,“ eins og barnanna sex sem Angelina Jolie og Brad Pitt eiga saman.

„Ef þau yrðu eins falleg og börnin þeirra þá ættum við kannski að eignast börn,“ sagði hún. Síðan bætti hún við, alvarlegri í bragði, að því fylgdi mikil vinna og mikil ábyrð að eiga börn. Þær gerðu sér grein fyrir því.

DeGeneres sagði einnig að þær de Rossi vildu njóta hveitibrauðsdaganna saman, áður en þær hugsuðu alvarlega um þetta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir