Jennifer Aniston nær sér niðri á John Mayer, sem sagði henni upp fyrr í mánuðinum, með því að njóta þess að vera á lausu. Hún hélt til New York, verslaði og fór í partí, í stað þess að hanga heima í LA og vera í ástarsorg.
Heimildamaður segir við tímaritið OK! að engu sé líkara en Jennifer sé í hefndarleiðangri. Fram að þessu hafi hún forðast sviðsljósið og reynt að sleppa frá ljósmyndurum, en núna veki hún viljandi athygli, brosi til ljósmyndaranna og sýni sig.
Í New York-ferðinni í síðustu viku fór hún í búðir og á Metropolitan listasafnið, og snæddi kvöldverð með Paul Rudd, sem hún lék á móti í myndinni Object of My Affection.