Breska fyrirsætan Kate Moss segist múta fimm ára dóttur sinni með tískufötum til þess að hún borði matinn sinn.
„Þegar hún verður 16 ára fær hún öll fötin mín," segir Kate og bætir við að dóttir hennar Lila Grace sé tískufrík. „Ég múta henni og segi að ef hún borði ekki kvöldmatinn, fái hún ekki fötin mín."
Í viðtali við tímaritið Interview segist Kate gefa föt sem hún vill ekki eiga lengur til góðgerðarsamtakanna Oxfam. Allt annað geymir hún í risastóru fataherbergi á sveitasetri sínu fyrir utan London.