Gerður hefur verið samningur um gerð kvikmyndar eftir bók Davids Squares um íshokkílið Fálkanna. Liðið varð ólympíumeistari árið 1920, þvert á allar líkur. Liðsmenn voru allir, utan einn, af annarri kynslóð Íslendinga í Winnipeg í Kanada.
Saga Fálkanna er ótrúleg og þeir bjuggu við mikið mótlæti. Þeim var ekki hleypt inn í Winnipeg-deildina og stofnuðu þess vegna sína eigin og komust alla leið á Ólympíuleikana. Um sigurinn var m.a. ritað að árangurinn ætti að fylla hjörtu allra Íslendinga gleði og stolti „vegna þess að það eru drengirnir þeirra, sem fræknastir hafa reynst og þannig svarið sig í kyn forfeðranna á söguöldinni“.