Bandaríska leik- og söngkonan Jessica Simpson segist hafa átt sér „leynilega elskhuga.“ Nokkur lög á fyrstu kántríplötunni hennar fjalli um þessar ástir í meinum.
Jessica hefur verið með fjölmörgum frægum mönnum, þ. á m. tónlistarmanninum John Mayer og ruðningshetjunni Tony Romo, og var til skamms tíma gift Nick Lachey.
„Það voru strákar sem fólk vissi ekki að ég var ástfangin af. Ég hef átt mér leynilega elskhuga,“ sagði hún.