„Framleiðendurnir mínir ætluðu varla að trúa þessu, að ég hefði fengið hann,“ segir Baltasar Kormákur sem hefur fengið tónskáldið James Newton Howard til þess að semja tónlistina fyrir sína nýjustu mynd, Run For Her Life. Howard er eitt virtasta tónskáldið í Hollywood, en hann hefur samið tónlist fyrir myndir á borð við Alive, King Kong, The Sixth Sense, The Fugitive og nýjustu Batman-myndina, The Dark Knight.