Hera Hjartardóttir heldur í kvöld sína síðustu tónleika áður en hún fer af landi brott, aftur til Nýja-Sjálands.
Hera hefur verið á tónleikaför um Ísland síðustu vikur og hélt tónleika á tólf stöðum hringinn í kringum landið, vopnuð gítar.
Lokatónleikarnir fara fram á skemmtistaðnum Domo í Þingholtsstræti og hefjast kl. 21 en húsið verður opnað kl. 20.
Sala aðgöngumiða er á Midi.is.