Kvikmyndin Kjötborg eftir þær Helgu Rakel Rafnsdóttur og Huldu Rós Guðnadóttur var valin besta íslenska heimildarmyndin á heimilda- og stuttmyndahátíðinni Reykjavík Shorts&Docs sem lauk í gær, og fékk þar með Silfurrefinn, verðlaunagrip hátíðarinnar. Kjötborg fjallar um samnefnda hornverslun í Vesturbæ Reykjavíkur og bræðurna Gunnar og Kristján sem reka hana.
Það var svo Gjörgæsla eftir Börk Sigþórsson sem var valin besta íslenska stuttmyndin, en hún er aðeins einnar mínútu löng.
Nánari upplýsingar má finna hér