Nýjasta parið úr heimi fræga fólksins á að minnsta kosti eitt sameiginlegt, endurteknar heimsóknir til lýtalækna. Samkvæmt slúðurblöðum og -vefjum eru Michael Jackson og Pamela Anderson að stinga saman nefjum. Eiga þau að hafa farið á tvö rómantísk stefnumót í Malibu í Kaliforníu.
Heimildir Daily Mirror herma að samdráttur þeirra fari mjög leynt enda sé söngvarinn lítið fyrir það að opinbera athafnir sínar. Á fyrsta stefnumótinu hittust þau á Shutters hótelinu í Malibu. Komu þau í sitthvoru lagi til þess að engan grunaði neitt og fengu sér nokkra drykki á barnum þar sem þau hímdu úti í horni. Svo virðist sem þau hafi hins vegar skemmt sér konunglega, samkvæmt Daily Mirror. „Þau voru mjög vingjarnleg við hvort annað. Pamela daðraði líkt og venjulega og Michael virtist svara því . Þau eru mjög sérstakt par en virðast ná mjög vel saman."
En þau hafi ekki látið þar við sitja þar sem það sást til þeirra yfir kaffibolla á öðrum stað í Malibu.
En þau eiga fleira sameiginlegt en lýtaaðgerðir því þau hafa bæði átt í hjónabandserfiðleikum. Michael hefur verið kvæntur í tvígang, fyrst gekk hann í hjónaband með Lisu-Marie Presley og síðar Deborah Jean Rowe.
Pamela á þrjú hjónabönd að baki, með Tommy Lee, Rick Salomon og Kid Rock. Ekkert þessara hjónabanda entist lengur en þrjú ár.