Jennifer Aniston verður í gestahlutverki sem „frjálslyndur hrellir“ í þætti í gamanþáttaröðinni 30 Rock síðar á árinu. Auk þess að vera „framúrskarandi ljúf í umgengni“ er Aniston sögð „kunna hvernig á að vera klikkaður.“
Tina Frey, sem er einn höfunda þáttanna og leikur í þeim, sagði það mjög spennandi að fá Aniston í einn þátt.
„Það er ekki nóg með að Jennifer sé framúrskarandi ljúf í umgengni heldur kann hún, eins og krakkarnir myndu segja, hvernig á að vera klikkaður,“ sagði Frey.
Aniston mun fara með hlutverk hrellis sem ofsækir Jack, sem Alec Baldwin leikur.