Breska leikkonan Keira Knightley hefur flottasta stútinn á vörunum, samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar sem varaáburðarframleiðandinn Blistex lét gera. Angelina Jolie var í þriðja sæti.
Keira hefur látið þau orð falla að sér þyki stúturinn á vörunum á sér hreint ekki fallegur, og geri að verkum að hún líti út fyrir að vera með meltingartruflanir.
„Ég set ekki stút á varirnar til að vera kynþokkafull. Ég geri það þegar ég einbeiti mér. Mér finnst að ég líti þá út fyrir að vera með hægðatregðu,“ sagði hún.
Í öðru sæti í könnuninni varð Kylie Minogue, en listinn yfir tíu flottustu stútana er svona:
1 Keira Knightley
2 Kylie Minogue
3 Angelina Jolie
4 Scarlett Johansson
5 Victoria Beckham
6 Jennifer Aniston
7 Kelly Brook
8 Cameron Diaz
9 Jessica Alba
10 Charlotte Church