Fregnir herma að Hugh Grant geri nú hosur sínar grænar fyrir 27 ára fatahönnuð og fyrrverandi fyrirsætu, Catherine nokkurri Fulmer. Sjálfur er Grant 47 ára. Mun hann hafa daðrað við hana á ströndinni í Hamptons á Long Island á sunnudaginn.
Sá orðrómur er nú á kreiki, að Grant muni mæta á tískusýningu Fulmers á tískuvikunni í New York, sem verður í næstu viku.
En talsmaður Grants segir þetta allt úr lausu lofti gripið. „Nú hefur slegið saman hjá einhverjum. Þau hittust í partíi, en Hugh þekkir hana ekki neitt.“