ABBA, ABBA ABBA, ABBA

Úr myndinni Mamma Mia.
Úr myndinni Mamma Mia.

Helstu fréttir af Tónlistanum þessa vikuna eru þær að það eru nákvæmlega engar fréttir – eða svo gott sem. Efsta sætið vermir nú sem áður (og maður er farinn að halda um alla framtíð) tónlistin úr ABBA-myndinni Mamma Mia! Þessar ótrúlegu vinsældir hafa komið reyndustu poppspekingum til að klóra sér í hausnum en þær eru þó fyrst og fremst glæsilegur vitnisburður um að meistaralega samin popptónlist á við um aldur og ævi – og ásamt töframætti kvikmyndanna er hún greinilega með öllu óstöðvandi.

Nýjar skífur eiga þó enn séns og tvær þeirra ná alla leið upp fyrir topp tíu. Annars vegar er um að ræða safnplötuna Ég fíla 90's sem inniheldur „38 fokking góð lög“ eins og þar segir. Á henni fara mikinn Haddaway, Aqua, Snap!, Snow og Vanilla Ice, listamenn sem margir hafa eflaust reynt að hrista úr heilabúinu á umliðnum árum en eins og kemur fram að ofan þá ætti enginn að vanmeta slagkraft popptónlistarinnar. Sýnir, plata Eyjólfs Kristjánssonar sem hann gerði til heiðurs Bergþóru Árnadóttur, fer þá og inn á topp tíu og þá skríður nífætta skrímslið Slipknot einnig inn á lista með nýjustu afurð sína, All Hope Is Gone.

Sálin nartar í hælana á Coldplay

ÞAÐ er hins vegar ekkert ABBA- kjaftæði í gangi á Lagalistanum en þar bítast íslenskir popparar og lagsbræður þeirra frá Bretlandi og Bandaríkjunum um vinsældirnar. Geðþekku piltarnir í hinni ofurvinsælu Coldplay eiga sem fyrr vinsælasta lagið en hver getur svosem verið að atyrða óð til lífsins? Fast á hæla Coldplay koma hins vegar Bítlar íslenska poppsins, Sálin hans Jóns míns, með nýjustu smáskífu sína „Það amar ekkert að“. Sálarlög eiga iðulega greiða leið á öldur ljósvakans og koma þar til óhemju miklar vinsældir sveitarinnar en bakland þeirra hvað aðdáendur varðar er breitt og bústið og svo að sjálfsögðu poppinnsæi þeirra fóstbræðra, Stefáns Hilmarssonar og Guðmundar Jónssonar.

Nýtt lag Keane, sem hefur stundum verið líkt við Coldplay og það réttilega, fer þá örugglega inn á lista en tríóið gefur út þriðju hljóðversplötu sína í október komandi. Þá er og pláss fyrir smá flippað stuð úr Brooklynskíri en grallaraspóarnir í MGMT dansa dátt og dilla sér með laginu „Electric Feel“. Þá er ekki handónýtt að sjá þá Gallagherbræður komna aftur á stjá en fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Oasis, lagið „The Shock of Lightning“ hafnar í 24. sæti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir