Ljóst má vera að lokun tónleikastaðarins Organ muni koma niður á tónleikahaldi í borginni og öruggt má telja að lokunin hafi komið flatt upp á skipuleggjendur Airwaves sem reiknað höfðu með Organ sem einum af tónleikastöðum hátíðarinnar.
Það var hins vegar hljómsveitin Retro Stefson sem fyrst fékk að kenna á lokuninni því þegar sveitin mætti til hljóðprufu fyrir tónleika sem halda átti á miðvikudaginn blöstu við henni harðlæstar dyr með hengilás og keðjum. Sveitin dó þó ekki ráðalaus og flutti tónleikana í snarhasti yfir á Hressó þar sem forsmekkurinn var gefinn fyrir væntanlega plötu sveitarinnar.