Poppdrottningin Madonna kom heldur betur á óvart á tónleikum í Róm í fyrradag þegar hún tileinkaði páfanum lagið „Like a Virgin“, eða „Líkt og jómfrú“. Páfagarður sakaði Madonnu eitt sinn um að setja á svið einhverja djöfullegustu tónleika allra tíma og má því segja að hún hafi svarað fyrir sig.
„Ég tileinka þetta lag páfanum því ég er Guðs barn. Þið eruð líka börn Guðs,“ sagði hin nýfimmtuga poppdíva. Um 60.000 manns sóttu tónleikana. Ítölsk dagblöð fóru jákvæðum orðum um frammistöðu Madonnu og sögðu þessa gjöf til páfans óvænta ögrun.