Það beinlínis geislaði af leikkonunni Anitu Briem við forsýninguna í Laugarásbíói í gær þegar hún mætti í sínu fínasta pússi ásamt fjölskyldu og nánustu vinum. Þeirra á meðal var ungur maður sem fáir virtust kannast við og fylgdi Anitu við hvert fótmál.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun maðurinn heita Dean og vera kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, nákunnugur Íslandsvininum Eli Roth og Quentin Tarantino og hefur að sögn komið hingað til lands áður í fylgd þeirra.
Eins og fram kom í 24 stundum í gær vildi Anita ekki ræða ástarlífið en sagðist ofsalega hamingjusöm. Telja margir að þarna sé fundin uppspretta hamingju leikkonunnar. Alla vega var honum mikið í mun að allar myndir af leikkonunni væru flottar og gerðist svo kræfur að þurrka út þær myndir ljósmyndaranna sem honum fundust ekki uppfylla gæðakröfur sínar.