Nánast er uppselt á aukatónleika til heiðurs Vilhjálmi Vilhjálmssyni en miðasala hófst klukkan 10 í morgun. Alls hafa því selst tæplega átta þúsund miðar á tvenna tónleika sem haldnir verða í Laugardalshöllinni 10. og 11. október. Miðar á fyrri tónleikana seldust upp á tuttugu mínútum. Nú eru um tvö hundruð miðar eftir á aukatónleikana og síðar í dag hefst sala á ósóttum pöntunum á fyrri tónleikana.