Ásdís Rán tekur það rólega næstu mánuði

Ásdís Rán
Ásdís Rán

Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta er nú á batavegi eftir uppskurð sem hún gekkst undir í Búlgaríu um helgina. Ásdís greindist með æxli í kviði sem rofið hafði gat á eggjastokk en það leiddi til töluverðra innvortis blæðinga, eins og lesa mátti um í Morgunblaðinu og mbl.is í gær.

Eitt af því sem læknar ráðlögðu Ásdísi var að taka því rólega næstu mánuði og því er ljóst að Ásdís mun ekki geta komið sér jafnskjótt í það form sem hún ætlaði sér áður en keppnin um The Million Dollar Woman hefst í Sidney í Ástralíu í upphafi næsta árs. Ásdís hefur þó sýnt og sannað að hún lætur ekki barneignir né fyrirtækjarekstur koma í veg fyrir að draumar hennar á fyrirsætusviðinu rætist og því má allt eins gera ráð fyrir að mótlætið nú herði hana enn í sókninni eftir fyrsta sætinu og milljóninni sem í boði er.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach