Bandarísk poppstjarna slasaðist í flugslysi

Blink-182 árið 2003. Travis Barker er lengst til hægri.
Blink-182 árið 2003. Travis Barker er lengst til hægri.

Fjórir létu lífið þegar Learjet einkaþota fórst í Suður Karólínu í nótt. Tveir komust lífs af, Travis Barker, sem lék á trommur með bandarísku rokksveitinni Blink-182, og vinsæll plötusnúður. Báðir hlutu alvarleg brunasár.

Bandarísk flugmálayfirvöld segja að flugvélin hafi verið í flugtaki þegar bilun kom upp. Vélin fór út af flugbrautinni og brotlenti á nálægum vegi. 

Þeir Barker og DJ AM, sem heitir réttu nafni  Adam Goldstein, hafi verið fluttir á brunadeild sjúkrahúss í Augusta í Georgíu.

Tveir flugmenn og tveir farþegar létu lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar