Vefritið Calgary Herald dásamar íslenska kvikmyndagerð og furðar sig á því að tvær af bestu myndunum á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Calgary í Kanada skuli báðar koma frá svo fámennu landi.
Jar City er enska nafnið mynd Baltasars Kormáks Samper, Mýrinni og telur gagnrýnandi Calgary Herald, Eric Volmers ólíklegt að hann komi til með að sjá betri kvikmynd þetta árið.
Volmers er einnig hrifinn af beittri kímnigáfu í Brúðgumanum eða White Night Wedding og líkir leikstjóranum við Woody Allen.