2,3 kg þjóðarhneyksli

Eva Longoria Parker.
Eva Longoria Parker. AP

Leikkonan Eva Longoria Parker á varla orð yfir áhuga fjölmiðla vestanhafs á nýtilkomnum aukakílóum hennar eða pundum öllu heldur, sem eru fimm að hennar sögn. Það gera tæp 2,3 kg.

Leikkonan sótti Emmy-verðlaunin í fyrradag og hló að öllu slúðrinu. „Ég bætti á mig fimm pundum og það virðst vera þjóðarhneyksli,“ sagði hún við Billy Bush, einn af útsendurum sjónvarpsþáttarins Access Hollywood.

Miklar vangaveltur hafa átt sér stað á slúðurfréttasíðum um aukið hold Longoriu Parker, m.a. spáð í það hvort hún sé með barni. Það sem hleypti öllu af stað voru ljósmyndir af henni í bikiníi, og þótti maginn ekki eins sléttur og í þáttunum Desperate Housewives.

Ein af leikkonum þáttanna, Felicity Huffman, sló öllu upp í grín í síðustu viku og sagði stöllu sína ekki ólétta, bara feita. Longoria mun ekki hafa erft ummælin við hana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir