Bandaríski söngvarinn Clay Aiken er kominn út úr skápnum. Á forsíðu nýjusta tölublaðsins af People magazine er mynd af Aiken þar sem hann heldur á nýfæddum syni sínum, Parker Foster Aiken, undir yfirskriftinni: „Já, ég er hýr.“ Á forsíðunni er einnig haft eftir Aiken að hann geti ekki hugsað sér að ala barn upp við lygar eða reyna að fela sannleikann fyrir því.
Barnsmóðir Aiken er vinkona hans og plötuframleiðandinn Jaymes Foster.
Clay Aiken vann sér það til frægðar að lenta í öðru sæti í American Idol keppninni árið 2003.