Lindsay Lohan hefur loksins staðfest opinberlega samband sitt við plötusnúðinn Samönthu Ronson, en þær hafa verið í tygjum hvor við aðra lengi án þess að vilja gefa nokkuð uppi um eðli sambandsins.
Leikkonan mætti í viðtal í útvarpsþættinum Loveline fyrr í vikunni þar sem leyndardómnum var aflétt. Plötusnúðurinn Ted Stryker spurði hana þar hvort samband þeirra Samönthu hefði staðið í mánuði eða ár og Lindsay hló við en svaraði svo kæruleysislega: „Í mjög langan tíma.“
Fjölmiðlafulltrúi hennar hefur þó neitað þeim orðrómi að parið sé trúlofað.