Tóbaksfyrirtæki greiddu kvikmyndastjörnum í Hollywood stórfé um miðja síðustu öld fyrir að mæla með sígarettutegundum. Eitt fyrirtæki greidd 300 milljónir króna á núvirði á einu ári til kvikmyndaleikara. Þetta kemur fram í skjölum, sem nú hafa verið birt í tengslum við málaferli.
Í grein, sem skrifuð hefur verið um málið í blaðinu Tobacco Control og sagt er frá á vef BBC, kemur fram að klassískar kvikmyndir frá fjórða, fimmta og sjötta áratug síðustu aldar, á borð við Casablanca, stuðli enn þann dag að reykingum.
Nánast allir þekktustu kvikmyndaleikarar á þessum tíma fengu greiðslur frá tóbaksfyrirtækjum. Fundist hafa samningar sem leikarar á borð við Clark Gable, Cary Grant, Spencer Tracy, Joan Crawford, John Wayne, Bette Davis og Betty Grable skrifuðu undir.
Vitnað er til samnings, sem Al Jolson, sem lék í Jasssöngvaranum, fyrstu talmyndinni, gerði. Hann skrifaði undir yfirlýsingu þar sem segir að Lucky Strike sé sígarettutegund avinnuleikaranna.
Þá hefur fundist listi yfir greiðslur American Tobacco, framleiðanda Lucky Strike, til kvikmyndaleikara á einu ári á fjórða áratugnum. Þar kemur frma að kunnar stjörnur á borð við Carole Lombard, Barbara Stanwyck og Myrna Loy
fengu 10 þúsund dali, jafnvirði um 14 milljóna króna á núvirði, fyrir að mæla með tegundinni. Það sama fengu Clark Gable, Gary Cooper og
Robert Taylor. Alls greiddi fyrirtækið um 300 milljónir króna á núvirði þetta ár.