Sjónvarpsdrottningin Oprah Winfrey lætur sér ekki að nægja að tröllríða spjallþáttamarkaðnum því nú hefur hún ákveðið að herja á nýjan markað: barnaefnið. Oprah hefur tekið að sér hlutverk í hinni væntanlegu Disney-teiknimynd The Princess and the Frog en þar mun hún fara með hlutverk móður aðalpersónunnar. Prinsessan og froskurinn verður frumsýnd seinni hluta næsta árs.