Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston reynir nú allt hvað hún getur til þess að krækja aftur í fyrrverandi kærasta sinn, söngvarann John Mayer, en þau hættu saman í síðasta mánuði. Fregnir herma að hún hringi í kappann á hverjum degi, og reyni að koma honum í skilning um hvað hann fer á mis við.
„Það kom John skemmtilega á óvart að heyra í henni. Hann segir að þau séu í stöðugu símasambandi, og að hann hlakki mikið til að hitta hana,“ sagði heimildarmaður um málið.
Mayer mun þó hafa nokkrar áhyggjur af Aniston, en undanfarið hefur sést til hennar þar sem hún er úti að skemmta sér með vinum sínum. Talið er að það hafi hún gert til þess að reyna að komast yfir Mayer.