Leikkonan Kirsten Dunst ætlar að leika í annarri kvikmynd um kóngulóarmanninn en hún fór með hlutverk Mary Jane Watson, vinkonu kóngulóarmannsins í fyrri myndum.
Sony Pictures ætla að taka upp kvikmyndirnar Spider-Man 4 og Spider-Man 5 saman og hefur Dunst staðfest að hún verði með. Hún hefur hins vegar aðeins dregið í land og segist nú ekki staðfesta neitt, einungis sé um orðróm að ræða.
Herma heimildir að bæði leikstjórinn Sam Raimi og leikarinn Tobey Maguire, sem fer með hlutverk ofurhetjunnar, ætli að taka þátt í gerð fjórðu myndarinnar um kóngulóarmanninn.