Skammast sín ekki fyrir lýtaaðgerðir

Dita von Teese
Dita von Teese Reuters

Fyrirsætan Dita Von Teese gagnrýnir fræga fólkið fyrir að viðurkenna ekki að það hafi farið í lýtaaðgerðir. Von Teese hefur greint frá því að hún hafi farið í brjóstaaðgerð á sínum yngri árum en fyrirsætan er 36 ára. „Það er ekkert leyndarmál að ég fór í brjóstastækkun. Þegar ég var unglingur var ég þokkalega stór brjóst en þegar ég gekk í gegnum tímabil skemmtana og eiturlyfjaneyslu þá grenntist ég mikið og brjóstin komu aldrei til baka."

„Ég mun aldrei biðjast afsökunar á því að hafa gert þetta. Ég vildi bara óska þess að fleiri af fræga fólkinu myndu viðurkenna það," segir hún.

Fyrirsætan lýsir því í viðtali við tímaritið Look hvernig hún haldi sér grannri. „Þegar ég er í megrun þá beiti ég heilbrigðri skynsemi. Ég borða ekki ostborgara á hverjum degi og reyni að velja hollan mat. Minn löstur er mjólk og kex." 

„Til þess að halda mér í formi þá stunda ég jóga, pilates og ballett. Ég þoli ekki líkamsrækt svo ég á lítið trampólín til þess að hoppa á," segir Dita Von Tees.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir