Britney Spears er að velta fyrir sér að flytja til New York. Herma fregnir að hún hafi rætt við fyrrverandi mann sinn, Kevin Federline, sem hún á tvo drengi með, um það hvort hann sé tilbúinn að flytja frá Miami og setjast að í New York.
Heimildamaður tjáði MSNBC: „Britney gælir alltaf við þá hugmynd að flytja til New York, en af því getur auðvitað ekki orðið nema Kevin flytji líka.“
Britney sagðist nýlega sjá eftir því að hafa selt íbúð sem hún átti í New York.
Í fyrrakvöld fór hún á söngleik á Broadway, en fyrr um daginn varð hún fyrir svo mikilli ásókn aðdáenda, þar sem hún var í verslunarleiðangri, að hún varð að leggja á flótta.
Í síðasta mánuði bárust af því fréttir að hún hefði selt húsið sitt á Malibuströndinni fyrir tæpar átta milljónir dollara.