Hljóðupptaka af Geir H. Haarde gengur nú eins og rauður logi um netheima. Þar hallar forsætisráðherra sér upp að Urði Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa í utanríkisríkisráðuneytinu og segir einhvern fréttamanninn fífl og dóna.
Sagan segir að þessi einkunn hafi verið ætluð Helga Seljan af Ríkissjónvarpinu sem hafði sig í frammi á fundinum. MBL Sjónvarp tók upp fréttamannafundinn og atvikið er þegar skipt var af fundi fyrir íslenska fréttamenn yfir í fund á ensku fyrir aðra.
Geir H. Haarde hefur gleymt því í hita leiksins að Iðnó er kónguóarvefur af hljóðnemum og upptökutækjum og hver einasti hósti fer inn á band.