Palin og Díana skyldar

Forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum og varaforsetaefni þeirra eru stöðugt undir nálarauga almennings. Nú hafa erfðafræðingar í Bandaríkjunum komist að því að Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblikana, sé tengd Díönu prinsessu. Ekki nóg með það heldur er Barack Obama, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, skyldur leikaranum Brad Pitt. 

Erfðafræðingarnir fundu það einnig út að Palin og Franklin Delano Roosevelt, fyrrum forseti Bandaríkjanna, eru tengd blóðböndum. Roosevelt var 32. forseti Bandaríkjanna en hann gegndi embættinu frá árinu 1933 til 1945.

Díana prinsessa var gift Karli Bretaprins frá 1981 til ársins 1996. Hún lést í bílslysi í ágúst  1997.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að eyða tíma með ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálfum sér. Gættu þess að ganga ekki á rétt annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Solja Krapu-Kallio
4
Torill Thorup
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að eyða tíma með ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálfum sér. Gættu þess að ganga ekki á rétt annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Solja Krapu-Kallio
4
Torill Thorup
5
Sarah Morgan