Leikkonan Angelina Jolie getur ekki með nokkru móti horft á sjálfa sig á hvíta tjaldinu af ótta við að þola ekki frammistöðu sína. „Ég hef ekki ennþá séð myndina Wanted. En mér skilst að hún hafi verið skemmtileg.“
Jolie frumsýndi á dögunum kvikmyndina Changeling í leikstjórn Clint Eastwood.
Í viðtali tjáði Jolie blaðamönnum að það hefði verið draumi líkast að leika undir stjórn Eastwoods. Hann hefði verið harður húsbóndi og með allt á hreinu. „Ég hef mikinn áhuga á að vinna aftur með honum. Ég þarfnast vinnu.“
Eastwood mun vera álíka áhugasamur um frekara samstarf við Jolie og bauð henni hlutverk í næstu mynd The Human Factor og fjallar hún um ævi suður-afríska leiðtogans Nelson Mandela. Í gamni spurði hann Jolie: „Geturðu leikið Mandela?“