Ásdís Rán fer nú að verða að eina ljósa punktinum í svartnættinu sem vofir yfir blogg- og mannheimum. Stúlkan segir frá því í nýjustu bloggfærslu sinni að hún hafi staðfest tvær myndatökur fyrir búlgörsk tímarit auk þess sem í dag sé hún í forsíðumyndatöku fyrir ítalska tímaritið Max.
Ku henni hafa verið boðin dágóð upphæð fyrir að sitja fyrir hjá tímaritinu sem hún segir mjög stílhreint og flott karlatímarit. Þá segist hún hafa staðfest myndaþátt í OK Magazine þar sem öll fjölskyldan mun sitja fyrir og um áramótin eru enn aðrar myndatökur áætlaðar fyrir karlatímaritin FHM og Maxim.
Svo vel gengur hjá stúlkunni í Búlgaríu að fari svo (á versta veg að sjálfsögðu) að Garðar Gunnlaugs missi sæti sitt í CSKA Sofia gæti Ásdís Rán með góðu móti haldið fjölskyldunni uppi með fyrirsætustörfum.