Þriðja plata skosku rokksveitarinnar Franz Ferdinand er væntanleg 26. janúar næst komandi og heyrst hefur að plötunni hafi verið gefið nafnið Tonight en samkvæmt tónlistarvefnum Pitchfork mun skífan heita: Tonight: Franz Ferdinand.
Hljómsveitin fer í hljómleikaferð um Evrópu í næsta mánuði og mun enda hana í lok desember og byrjun janúar í áströlsku sumri í Brisbane.