Bandaríska söngkonan Janet Jackson hefur aflýst fleiri tónleikum vegna veikinda. Ekki liggur fyrir hvað hrjáir söngkonuna en hún var nýverið flutt á sjúkrahús. Er það samkvæmt læknisráði sem hún hefur aflýst tónleikunum.
Jackson átti meðal annars að koma fram á tónleikum í Madison Square Garden í New York.