Myndbandið við lag Bjarkar Guðmundsdóttur „Wanderlust“ hlaut þrenn verðlaun á bresku tónlistarmyndbands-verðlaununum sem fram fóru í London á þriðjudag. Myndbandið hlaut verðlaun fyrir bestu listrænu stjórnunina, besta indí-myndbandið og svo hlaut myndbandið aðalverðlaun hátíðarinnar sem besta myndband ársins.
Tvíeykið Encyclopedia Picturra leikstýrði myndbandinu en leikstjórarnir viðurkenndu að það hefði verið gert undir áhrifum af ofskynjunarsveppum.
Í nýja myndbandinu sést Björk fljótandi á skærblárri á umkringd alls kyns forsögulegum dýrum. Notast var við brúður og líkön til að búa draumkennda veröld svipaða þeirri sem Björk hefur skapað bæði í tónlist sinni og myndböndum.