Nancy Shevell, unnusta Sir Pauls McCartneys, er sögð vera flutt inn til hans í sveitasetrið í Peasmarsh á suðurhluta Englands þar sem McCartney heldur aðalheimili sitt.
Shevell er bandarísk og situr m.a. í stjórn almenningssamgangnakerfis New York ríkis. Þau McCartney hafa verið saman í um ár.
Breskir fjölmiðlar hafa eftir heimildarmönnum, sem sagðir eru þekkja til, að McCartney hafi spurt dætur sínar, tískuteiknarann Stellu og Beatrice, fjöugurra ára dóttur þeirra Heathers Mills, um leyfi áður en Shevell flutti inn.