Playboy-kóngurinn Hugh Hefner krefst mikils af sínum nánustu, og tekur mikinn tíma frá þeim. Þetta segir fyrrverandi unnusta hans, Playboy-kanínan Holly Madison, sem sagði skilið við hinn 82 ára gamla Hefner í síðasta mánuði og er nú að slá sér upp með töframanninum Criss Angel. Hún segir að það sé mikill léttir að vera með manni sem krefst ekki stöðugrar athygli eins og Hefner.
„Það er stórkostlegt að vera í sambandi með einhverjum sem tekur ekki svona mikinn tíma. Fyrirgefðu Hef, ég elska þig, en þú veist alveg að þú tekur mikinn tíma,“ sagði Madison í nýlegu viðtali.